Little Lollipops Chihuahua

Aðalsíða  Um okkur  Fréttir  Myndir  Chihuahua
Hundarnir okkar  Regnbogabrúin  Myndbönd  Tenglar


mars´09

29.03.2009

Hér er eitt nýlegt video af Eyju, Ísabellu og Öbbu Dís út í garði

http://www.youtube.com/watch?v=Zv7dXqlpbHA


27.03.2009

Það er allt gott að frétta af hundunum.
Hvolparnir fara í síðustu sprautuna 1.apríl og geta þá farið í göngutúra og út um allt.
Max kom í heimsókn í gær og var rosalega gaman að hitta hann aftur :-)
Svo góður og mikið krútt og léku allir hundarnir sér saman.
Við tókum fullt af myndum af þeim.
Skjöldur er ennþá að leita að rétta heimilinu en við erum rosalega pikkí á heimili.
Kannski höldum við honum bara sjálf sjáum til.

En fullt af myndum af þeim hér eða klikkið á myndina til að fá fleiri myndir.


24.03.2009

Max er komið með rosa fína síðu sem við getum fylgst með honum í framtíðinni :-)
Hér er slóðin:
http://dyraland.is/dyr/86304/


19.03.2009

Það gengur vel hjá okkur og hvolparnir urðu 12.vikna á mánudaginn.
Við fórum í heimsókn til Böggý í vikunni með hvolpana í umhverfisþjálfun
og gekk það mjög vel, var rosalega gaman að hitta hundana hennar
og Blöku Yorkshire Terrier hvolpinn hennar sem er undan Bíbí hennar.
Takk fyrir að leyfa okkur að kíkja í heimsókn með skæruliðana Böggý :-)
Svo eru komnar myndir af hinum dýrunum á heimilinu hér til hægri.
En nokkrar myndir hér eða klikkið á myndina til að fá fleiri myndir og eitt video hér:
http://www.youtube.com/watch?v=ayl2SwEU0rc


Skjöldur, Abba Dís, Eyja og Stúfur


11.03.2009

Hér er video af strákunum út í garði og nokkrar fleiri myndir hér

http://www.youtube.com/watch?v=5hUW-FXcMoM


Fleiri nýjar fréttir fyrir neðan.


06.03.2009

Það gengur bara mjög vel hjá max og Dreka.
Við heimsóttum Max í gær og gengur vel hjá honum hjá æðislegri fjölskyldu og líður honum mjög vel.
Það gengur líka vel hjá Dreka og er hann komin með heimasíðu :-) hér er slóðin http://dyraland.is/dyr/86006/

Abba er líka rosalega góð hjálpar mamma og leikur rosalega mikið við þau :-)

Svo eru fullt fullt fullt af nýjum myndum hér :-D


02.03.2009

Hvolparnir eru 10.vikna í dag, alltof fljótt að líða.
Max fór á nýja heimilið sitt á laugardaginn til æðislegra fjölskyldu og gengur bara mjög vel þar :-)
Ísabella var ekkert að leita að honum eða gráta.
Dreki fer til yndislegt par í dag og Skjöldur er sá eini sem á eftir að fá heimili.
Nýjar myndir


Skjöldur