Little Lollipops Chihuahua

Aðalsíða  Um okkur  Fréttir  Myndir  Chihuahua
Hundarnir okkar  Regnbogabrúin  Myndbönd  Tenglar


maí´09

28.05.2009

Hvolparnir eru orðnir 5.mánaða og gengur vel hjá okkur.
Erum búin að skrá hvolpana á sýninguna og Eyja fór á sína fyrstu sýningarþjálfun síðasta sunnudag og var hún svoldið óörugg fyrst að sjá alla þessa hunda en var svo betri eftir smá tíma.
Við ætlum svo með Eyju og Skjöld næsta sunnudag :-)
Eyja er orðin inniskóaþjófur og tekur alltaf inniskóinn hjá manni og fer með hann upp í bælið sitt og fer að sofa.

En nokkrar myndir hér eða klikkið á myndina til að fá fleiri myndir


Eyja


16.05.2009

Ísabella, Dabbi, Kolla, Jón Trausti og Ingibjörg fóru upp á Esjuna í dag í rosa góðu veðri og var rosalega gaman en Jón og Ingibjörg fóru á undan okkur upp.
Við fórum að skilti 7 sem er næstum því á toppinum og var fullt af fólki og sáum nokkra hunda.
Ísabella var ekkert svo þreytt þegar hún var komin upp en Dabbi þurfti aðstundum að halda á henni frá skilti 5 til 7 því það var svoldið bratt upp en við tókum nokkrar myndir frá því hér

Líka myndir af Önnu og hundunum hér

Anna sem á Eld er að fara til útlanda í 3.mán.
Góða ferð og gangi þér vel úti frá öllum voffunum  :-)


06.05.2009

Til hamingju með afmælið elsku Abba Dís okkar sem er orðin 2.ára
og óskum við líka systkinum hennar Pattý og Rómeó til hamingju með afmælið :-)

Hún fékk mús, jógúrtstöng, pulsu og svínseyra í afmælisgjöf og var mjög ánægð með það :-)
Hér eru nokkrar myndir af henni og Stúfi.
 


Svo sæt á afmælinu sínu :-)


Stúfur í sólbaði